Jóhann Ársælsson
Pistlar

Greinar

Jóhann Ársælsson

Þingstörf

Tenglar


Hafa samband


Samfylking
Kl. 09:05, 16.01.2008
Um auðlindir til sjós og lands.
Þann 15.desember s.l. fjallar ritstjóri Morgunblaðsins í forystugrein um nýákveðna niðurfellingu og lækkun Alþingis á auðlindagjaldi í sjávarútvegi undir fyrirsögninni ,,Linkind''. Þar segir í aðfaraorðum að þingið sýni mikinn ,,vesaldóm'' í varðstöðu sinni um hagsmuni almennings. Í lokaorðum segir að aumingjaskapur ríkisstjórnar, stjórnarflokka og Alþingis í þessu máli sé svo mikill að þessir aðilar séu greinilega ,,ófærir um að gæta almannahagsmuna''.
Lesa meira

Kl. 09:58, 16.04.2007
Iðnaðarráðherra í tímahraki
Þriðjudaginn 10.apríl skrifar Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins grein í Morgunmblaðið um afdrif frumvarps um nýtingu og vernd auðlinda sem Alþingi hafði til meðferðar í vetur. Þar segir hann skammsýni og mistök stjórnarandstöðunnar hafi valdið því að málið hlaut ekki fullnaðarafgreiðslu á nýloknu þingi. Hér fer Jón Sigurðsson með rangt mál. Hann ber sjálfur öðrum mönnum fremur ábyrgð á því að málið fékk ekki brautargengi í þinginu
Lesa meira

Kl. 12:53, 24.02.2007
Marel lokar á Ísafirði
Það er áfall fyrir íbúa á Vestfjörðum og reyndar fyrir íbúa á allri byggð utan höfuðborgarsvæðisins að öflugt fyrirtæki á landsvísu skuli telja það skynsamlega ákvörðun að leggja þar niður mikilvæga starfsemi. Menn eru líka undrandi á þessum fréttum. Ekki eru liðin þrjú á frá því að fyrirtækið yfirtók Pól með yfirlýsingum um að Marel sæi samlegðaráhrif og hagræðingatækifæri í því að sameina starfsemi Póls rekstri Marels. Margir töldu að með þeirri ákvörðun væri verið að styrkja og festa í sessi þá starfsemi sem fyrir var á Ísafirði. Einhverjir höfðu þó áhyggur minnugir þess að þátttaka öflugra fyrirtækja sem hafa aðalstarfsemi sína annarsstaðar hefur ekki alltaf orðið Vestfirðingum til gæfu.
Lesa meira

Kl. 19:59, 20.01.2007
Uppgjöf stjórnarskrárnefndar
Nú hefur formaður stjórnarskrárnefndar Jón Kristjánsson lýst því yfir að nefndin hafi ekki náð saman um nema eina tillögu um breytingar á stjórnarskránni. Niðurstaðan hlítur að vekja mikla athygli í ljósi kosningaloforða Framsóknarflokksins um að sjávarauðlindir skuli skilgreindar í stjórnarskrá sem þjóðareign.
Lesa meira

Kl. 09:24, 22.07.2006
Hinn indæli ríkisbúskapur.

" Er landbúnaðarumræðan fallin í gamla Kratahjólfarið ? " spyr Jón Bjarnason í grein á BB í fyrradag. Jón er þarna að skammast út af tillögum hagstofustjóra sem hann setti fram á grundvelli nefndarstarfs sem lauk nú á dögunum.

Lesa meira

1 2 3
Jóhann Ársælsson
Nýjustu greinar

Um auðlindir til sjós og lands.
Iðnaðarráðherra í tímahraki
Marel lokar á Ísafirði
Uppgjöf stjórnarskrárnefndar
Hinn indæli ríkisbúskapur.
© Jóhann Ársælsson