Pistlar
Greinar
Jóhann Ársælsson
Þingstörf
Tenglar
Hafa samband
|
|
Kl. 22:11, 20.04.2008 Hvað er til ráða? Málþing Samfylkingarinnar á Grand Hótel 19. apríl 2008. Erindi Jóhanns Ársælssonar.
Eftir að Mannréttindanefnd SÞ samþykkti álit sitt um
að stefna íslenska stjórnvalda við úthlutun réttinda til fiskveiða sé brot á mannréttindum bíða margir svara um hvaða breytingar íslensk stjórnvöld ætli að gera á fiskveiðistjórninni.
Ég miða þessa umfjöllun við að aflamarkskerfið verði áfram við lýði sem stjórnkerfi við fiskveiðar.
En á grundvelli aflamarkskerfisins er að mínu áliti einungis ein leið fær til að koma til móts við sjónarmið mannréttindanefndarinnar.
Lesa meira
|
|
Kl. 12:36, 16.01.2008 Mannréttindabrot Mannréttindanefnd SÞ segir okkur að með þeirri aðferð sem hér er notuð við úthlutun veiðiréttar sé framið mannréttindabrot Lesa meira
|
|
Kl. 16:18, 16.03.2007 Sjónarspil um stjórnarskrá Vegna þeirra ósannindaþoku sem Framsóknarflokkurinn með formann sinn í broddi fylkingar reynir nú í örvæntingu sinni að sveipa um óheilindi sín, staðfestuleysi og vesöld í stjórnarskrármálinu tel ég rétt að rekja gang málsins í örfáum orðum. Lesa meira
|
|
Kl. 10:41, 05.03.2007 Klofningur í stjórnarflokkunum. Ég velti því mjög fyrir mér þegar stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar var birtur á sínum tíma hvað ríkisstjórnarflokkarnir ætluðust fyrir með yfirlýsingu sinni um það að festa skuli ákvæði um að auðlindir sjávar skuli vera þjóðareign í stjórnarskrána. Nú eru þessi mál tekin að skýrast. Sjálfstæðisflokkurinn virðist hafa fallist á þetta til þess að komast í ríkisstjórn og stefnt að því allan tímann að koma í veg fyrir að málið næði fram að ganga. Skipan Þorsteins Pálssonar fyrrverandi sjávarútvegsráðherra í nefndina og framgangur málsins í henni er til marks um þetta. Framsóknarflokkurinn sem krafðist þess að þetta ákvæði kæmi inn í stjórnarsáttmálann gat ekki annað vegna undanfarandi átaka í flokknum. Þeim lyktaði með „sátt“ um að flokkurinn gengi til kosninga með þá stefnu að þjóðareign á auðlindum sjávar yrði bundin í stjórnarskrá. Lesa meira
|
|
Kl. 09:50, 24.02.2007 Stefna afskrifuð Í Fréttablaðinu sl. sunnudag er grein eftir Illuga Gunnarsson undir fyrirsögninni "stefna afskrifuð" Ég las hana af athygli í þeirri von að Illugi væri nú loksins að svara greinum frá mér og Jóni Gunnarssyni alþingismanni frá því í haust þar sem við brugðumst við svipuðum skrifum frá honum. Þá inntum við Illuga eftir hver væri í raun stefna Sjálfstæðisflokksins í málefnum sjávarútvegsins hvað varðar nýtingu auðlindarinnar og sameign þjóðarinnar á henni. Við skoruðum þá báðir á Illuga Gunnarsson sem hefur tekið að sér forsvar fyrir Sjálfstæðisflokkinn í þessum málum að gera þjóðinni undanbragðalaust grein fyrir því hver sú stefna væri sem flokkurinn stendur fyrir. Ég svaraði þessari síðustu grein Illuga strax á mánudag en þar sem hún hefur ekki enn fengið rúm í blaðinu birti ég hana hér. Lesa meira
|
| 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 |
|
Nýjustu greinar
Um auðlindir til sjós og lands. Iðnaðarráðherra í tímahraki Marel lokar á Ísafirði Uppgjöf stjórnarskrárnefndar Hinn indæli ríkisbúskapur. |